Ferill 368. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 599 – 368. mál.
Frumvarp til búnaðarlaga.
(Lagt fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Skilgreiningar.
2. Búfjárrækt er starfsemi sem með skipulegu kynbótastarfi og bættri fóðrun stuðlar að framförum í búfjárframleiðslu.
3. Leiðbeiningarmiðstöð er miðstöð á vegum eins búnaðarsambands eða fleiri þar sem starfa sérfróðir menn á ýmsum sviðum landbúnaðar við leiðbeiningar og önnur verkefni tengd framkvæmd laga þessara.
4. Búnaðarfélag er félag bænda á ákveðnu svæði, oftast í einum hreppi, óháð þeim búrekstri sem þeir stunda.
5. Búgreinafélag er félag bænda á ákveðnu svæði sem stunda sömu búgrein.
6. Búnaðarsamband er svæðisbundið samband búnaðarfélaga, búgreinafélaga og/eða einstakra bænda.
7. Búgreinasamband er landssamband búgreinafélaga eða einstakra bænda sem stunda sömu búgrein.
8. Ræktunarstöð er sæðingarstöð, uppeldisstöð fyrir kynbótagripi af innlendum eða erlendum stofni, eða stofnverndarbú til ræktunar búfjárstofna vegna sameiginlegs ræktunar
9. Fagráð er nefnd sem mótar stefnu í kynbótum, rannsóknum, fræðslumálum og þróunarstarfi búgreinar. Fagráð getur starfað á fagsviði, t.d. hagfræði.
10. Landsráðunautur er ráðunautur sem hefur allt landið sem starfssvæði og hefur yfirumsjón með leiðbeiningum á sínu sviði.
2. gr.
Markmið laganna.
3. gr.
Yfirstjórn og fjárframlög ríkisins.
Ríkissjóður veitir árlega framlög til verkefna á sviði jarðabóta, búfjárræktar og leiðbein
Bændasamtök Íslands hafa á hendi faglega og fjárhagslega umsjón þeirra verkefna sem svo er samið um skv. 1. mgr. og fjárveiting heimilar, og annast framkvæmd þeirra nema öðruvísi sé um samið enda sé skipulag þeirra og starfsreglur í samræmi við ákvæði laganna. Bænda
4. gr.
Fagráð.
5. gr.
Um félagsaðild bænda.
II. KAFLI
Jarðabætur.
6. gr.
Markmið.
7. gr.
Framkvæmd.
Framlög til jarðabóta geta náð til allra jarðeigna sem teljast lögbýli samkvæmt skilgrein
8. gr.
Eftirlit.
III. KAFLI
Búfjárrækt.
9. gr.
Markmið.
10. gr.
Skýrsluhald.
11. gr.
Ræktunarstöðvar.
12. gr.
Búfjársæðingar.
13. gr.
Búfjársýningar og búfjármat.
Sláturleyfishöfum er skylt að láta í té aðstöðu til þess að framkvæma nauðsynlegar athug
14. gr.
Útflutningur búfjár.
15. gr.
Stofnverndarsjóður.
16. gr.
Erfðanefnd búfjár.
Helstu verkefni nefndarinnar skulu vera:
a. að fylgjast með og halda skrá um erfðabreytileika og þróun hans í helstu búfjárstofnum, villtum landdýrum og ferskvatnsfiskum,
b. að gera tillögur til landbúnaðarráðherra um sérstakar ráðstafanir til verndunar þeirra tegunda, stofna og eiginleika sem eru í útrýmingarhættu að mati nefndarinnar.
Landbúnaðarráðherra er heimilt með reglugerð að grípa til sérstakra ráðstafana sem nauð
IV. KAFLI
Um leiðbeiningarstarfsemi.
17. gr.
Markmið.
Hlutverk leiðbeiningarþjónustunnar er að:
1. miðla líffræðilegri, tæknilegri og hagfræðilegri þekkingu til allra búgreina,
2. þróa hagfræðileg og búfræðileg hjálpartæki fyrir leiðbeiningastarfsemi og fyrir einstaka bændur, svo sem með gerð hentugra tölvuforrita,
3. kynna fyrir bændum og öðrum viðkomandi stefnumörkun stjórnvalda í málefnum landbúnaðarins og á öðrum þeim sviðum er hann snerta, svo sem í landverndar- og umhverfis
4. vera stjórnvöldum til aðstoðar við framkvæmd löggjafar eftir því sem við getur átt og um semst milli aðila,
5. stuðla bæði faglega og félagslega að þróun nýrra búgreina og fylgjast með árangri frumherja á því sviði,
6. stuðla að sjálfbærri þróun við nýtingu auðlinda,
7. vinna að eflingu byggðar í sveitum og viðhalds menningararfs sveitanna.
Leiðbeiningarþjónustan skal stuðla að því, eftir því sem hún hefur tök á, að búskapur þróist í samræmi við þá stefnu sem mörkuð er með samningum samtaka bænda við ríkisvaldið.
18. gr.
Leiðbeiningarmiðstöðvar — ráðunautar.
Ráðunautar skulu hafa lokið kandídatsprófi (BS-prófi) í búvísindum eða öðrum fræði
Landsráðunautar skulu starfa í einstökum búgreinum eða fagsviðum eftir því sem um er samið skv. 1. mgr. 3. gr. og fjárveiting heimilar. Landsráðunautar hafa yfirumsjón með leið
V. KAFLI
Ýmis ákvæði.
19. gr.
Reglur um framkvæmd laganna.
20. gr.
Gildistaka.
Ákvæði til bráðabirgða.
a. Semja skal um greiðslu ákveðins hlutfalls af reiknuðu framlagi samkvæmt reglugerð nr. 417/1991. Heimilt er að greiða mishátt hlutfall eftir eðli framkvæmda, samkvæmt nánari ákvörðun landbúnaðarráðherra.
b. Skýrt verði kveðið á um í samningum þessum að um sé að ræða fullnaðaruppgjör vegna framkvæmda sem gátu notið framlags samkvæmt lögum nr. 56/1987, með síðari breytingum, sbr. einnig reglugerð nr. 417/1991.
Ríkissjóður mun verja 50 millj. kr. hvert ár á fjárlögum áranna 1998, 1999 og 2000 til efnda á samningum landbúnaðarráðherra.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Með frumvarpi þessu er lagt til að sett verði ný lög sem leysi af hólmi jarðræktarlög, nr. 56/1987, og lög um búfjárrækt, nr. 48/1989. Ákvæði jarðræktarlaga eru undirstaða þess skipulags sem gilt hefur hér á landi á meginhluta þessarar aldar um stuðning ríkisins við jarða- og húsabætur í sveitum. Á sama hátt eru búfjárræktarlögin undirstaða þeirra framfara í búfjárrækt sem orðið hafa hér á landi síðustu áratugina. Þessi tvenn lög eru einnig meginundir
Jarðræktarlögin.
Þegar Alþingi fékk löggjafarvald veitti það á sínum fyrstu fjárlögum, fyrir árin 1876 og 1877, 2.400 kr. styrk til jarðabóta. Framhald varð á styrkjum til jarðabóta í ýmsu formi næstu áratugina en árið 1923 voru samþykkt jarðræktarlög sem í grundvallaratriðum hafa gilt allt til þessa dags þó að löggjöfinni hafi oft verið breytt í samræmi við breytta tíma. Meðal styrkhæfra framkvæmda samkvæmt þessum fyrstu jarðræktarlögum voru áburðarhús og safnþrær, túnyrkja (þar undir ræktun, girðingar og framræsla), garðyrkja, votheyshlöður og þurrheyshlöður. Því má með réttu segja að strax í þessum fyrstu lögum hafi sú stefna verið mörkuð sem verið hefur undirstaða þeirra miklu framfara og framkvæmda sem orðið hafa í íslenskum landbúnaði á þessari öld.
Með gildandi jarðræktarlögum er Bændasamtökum Íslands falin framkvæmd jarðræktar
Búfjárræktarlögin.
Fyrstu heildarlögin þar sem fjallað var um búfjárkynbætur voru búfjárræktarlögin sem sett voru 1931. Fram til þess höfðu afskipti Alþingis af búfjárræktinni verið lítil og verulega minni en af jarðræktarmálum. Með búfjárræktarlögunum var Búnaðarfélagi Íslands falið annað af meginverkefnum þeim sem löggjafinn hefur trúað því fyrir. Eftir þessum lögum starfa búfjárræktarráðunautar þess og héraðsráðunautar sem sinna búfjárræktinni. Árið 1948 voru lögin endurskoðuð í heild og aftur árin 1957, 1965, 1973 og loks 1989 þegar núgildandi lög voru samþykkt.
Í lögunum er Bændasamtökum Íslands falin framkvæmd búfjárræktarmála. Þau hafa yfir
Breyttar aðstæður.
Hafa þarf í huga að þegar sú löggjöf sem að framan er lýst var í mótun ríkti hér á landi skortur á öllum helstu búvörum og mikið var flutt inn af þeim flest árin, bæði af kjöti og mjólk
Hafa þarf í huga að styrkir til landbúnaðar voru ekki síður en nú mjög miklir á 8. og 9. áratugnum í helstu nágrannalöndum okkar og ekki talið raunhæft að Íslendingar skæru sig þar úr. Einnig er rétt að benda á að framlög til jarðræktar komu til frádráttar fjárfestingarkostnaði við útreikning á verði búvara og voru því ígildi niðurgreiðslna á þeim kostnaðarlið sem leiddi til lækkunar á búvöruverði til neytenda.
Í lok sjöunda áratugarins heyrðust raddir um að draga bæri úr framlögum ríkisins til jarða
Segja má að með breytingu á lögunum um Framleiðsluráð landbúnaðarins sem Alþingi samþykkti árið 1979 hafi sú stefna verið mörkuð að miða skyldi framleiðslu mjólkur og kinda
Ný lög.
Í frumvarpinu sem hér er flutt er gert ráð fyrir að samþykkt verði ný lög sem leysi af hólmi gildandi lög um jarðrækt og búfjárrækt. Frumvarpið er samið af nefnd sem í áttu sæti fulltrúar frá landbúnaðarráðuneyti, fjármálaráðuneyti og Bændasamtökum Íslands. Nefnd sú sem frumvarpið samdi sendi Búnaðarþingi 1997 drög að frumvarpinu til umsagnar. Í ályktun Búnaðarþings kemur fram að þingið telji „að samþykkt fyrirliggjandi frumvarpsdraga til „Búnaðarlaga“ sé í aðalatriðum æskilegur gjörningur“.
Um er að ræða rammalög sem gera ráð fyrir samningum milli ríkisins og Bændasamtaka Íslands um verkefni á sviði jarðabóta, búfjárræktar, leiðbeininga og hagræðingar sem notið geti fjárstuðnings ríkisvaldsins. Hvorki þykir raunhæft né skynsamlegt frá þjóðhagslegu sjón
Frumvarpið gerir ráð fyrir að framlög ríkisins miðist fyrst og fremst við að um sé að ræða stuðning við þróunarverkefni og verkefni sem stuðla að framförum í íslenskri búvörufram
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Hugtakið jarðabætur er skilgreint sem hvers konar framkvæmdir á bújörð sem stuðla að framförum í búrekstri. Getur það bæði átt við framkvæmdir við jarðrækt og rekstrarbyggingar eða einstaka hluta þeirra.
Leiðbeiningarmiðstöð er nýtt hugtak í þessu samhengi en gert er ráð fyrir að samtök bænda í tilteknum landshluta sameinist um faglegar leiðbeiningar fyrir bændur á svæðinu.
Í 4.–7. lið eru skilgreiningar á grunneiningum félagskerfis bænda eins og það er eftir sam
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Framlög ríkisins til framkvæmdar á ákvæðum búfjárræktarlaga og ákvæðum jarðræktar
— Til Bændasamtaka Íslands vegna kostnaðar við störf landsráðunauta, rekstur tölvudeildar og annarrar fagstarfsemi 77,7 millj. kr.
— Til héraðsbúnaðarsambanda til greiðslu á hluta af launum og ferðakostnaði héraðsráðunauta 45,8 millj. kr.
— Framlög til kynbótastöðva 34,8 millj. kr.
— Framlög til búfjárræktar 42,5 millj. kr.
Framlag ríkisins til Bændasamtaka Íslands nam 77,7 millj. kr. á árinu 1996. Heildarkostn
Millj. kr. | |
Ráðunautar, laun og ferðakostnaður | 56,8 |
Skýrsluhald og fræðsla | 23,8 |
Húsnæðiskostnaður | 7,3 |
Stjórnar- og skrifstofukostnaður | 16,9 |
Samtals | 104,8 |
Þessi kostnaður var fjármagnaður á eftirfarandi hátt:
Millj. kr. | |
Starfsfé samkvæmt fjárlögum
|
77,7 |
Framlög ríkisins samkvæmt búfjárræktarlögum
|
6,8 |
Þróunarstyrkir og erlent starfsfé
|
5,8 |
Aðrar sértekjur
|
10,7 |
Halli greiddur af öðrum tekjum BÍ
|
3,8 |
Samtals
|
104,8 |
Framlög ríkisins til héraðsbúnaðarsambanda vegna kostnaðar við störf ráðunauta á árinu 1996 námu 45,8 millj. kr. Heildarkostnaður búnaðarsambandanna við hina faglegu starfsemi á vegum þeirra nemur hins vegar mun hærri fjárhæð. Ekki liggja fyrir tölur úr ársreikningum búnaðarsambandanna fyrir árið 1996, en samkvæmt ársreikningum 15 búnaðarsambanda fyrir árið 1995 nam kostnaður við faglega starfsemi þeirra 115,6 millj. kr. Meiri hluti þessa kostnaðar er greiddur með tekjum af búnaðarmálasjóðsgjaldi, sem bændur sjálfir greiða, með félagsgjöldum bænda og af öðrum tekjum búnaðarsambandanna. Um er að ræða kostnað við 38,5 ársstörf héraðsráðunauta. Fjármögnun þessa kostnaðar var eftirfarandi árið 1995:
Millj. kr. | Hlutfall | |
Framlög samkvæmt fjárlögum 1995
|
44,5 | 38,49% |
Tekjur af búnaðarmálasjóði (greitt af bændum)
|
57,8 | 50,00% |
Félagsgjöld bænda
|
10,1 | 8,74% |
Aðrar tekjur
|
3,2 | 2,77% |
Samtals
|
115,6 | 100,00% |
Skipting á framlögum til kynbótastöðva var eftirfarandi árið 1996:
Millj. kr. | |
Til búnaðarsambanda, kostnaður við störf frjótækna
|
22,3 |
Nautastöðin á Hvanneyri
|
1,6 |
Kálfauppeldisstöðin í Þorleifskoti
|
1,6 |
Stóðhestastöðin í Gunnarsholti*
|
1,3 |
Hrossakynbótabúið á Hólum í Hjaltadal
|
0,7 |
Sauðfjársæðingarstöðvar
|
1,8 |
Stofnungi, stofnræktarstöð fyrir alifugla á Hvanneyri
|
1,0 |
Viðbótarframlög til búnaðarsambanda
|
4,5 |
Samtals
|
34,8 |
* Ríkið hætti afskiptum af rekstri Stóðhestastöðvarinnar í Gunnarsholti í október 1996. |
Skipting á framlögum til einstakra verkefna á sviði búfjárræktar var eftirfarandi árið 1996:
Millj. kr. | Millj. kr. | |
Framlög vegna sæddra mjólkurkúa
|
3,9 | |
Laun vegna uppgjörs á ræktunarskýrslum
|
6,8 | |
Framlög til verndunar geitfjárstofnsins
|
0,7 | |
Kostnaður við erfðanefnd búfjár
|
0,5 | |
Framlög til búfjárræktarfélaga | ||
Sauðfjárrækt
|
10,2 | |
Nautgriparækt
|
9,5 | |
Hrossarækt
|
7,6 | |
Svínarækt
|
0,8 | |
Loðdýrarækt
|
2,5 | 30,6 |
Samtals
|
42,5 |
Framlög ríkisins til verkefna samkvæmt jarðræktarlögum og búfjárræktarlögum hafa lækkað mikið sl. tíu ár.
Í næstu töflu er sýnd þróun framlaga samkvæmt fjárlögum til umræddra verkefna árin 1987–96, reiknað á föstu verðlagi. Einnig eru sýnd ógreidd framlög samkvæmt jarðræktarlög
Ár |
Greitt samkvæmt fjárlögum | Þar af jarð
|
Reiknuð ógreidd jarðræktarframlög |
Samtals greidd og reiknuð framlög |
1987 | 609.311 | 353.013 | 609.311 | |
1988 | 443.400 | 200.379 | 443.400 | |
1989 | 435.621 | 191.144 | 435.621 | |
1990 | 390.658 | 132.362 | 390.658 | |
1991 | 365.394 | 123.930 | 365.394 | |
1992 | 369.087 | 124.223 | 50.736 | 419.823 |
1993 | 274.147 | 64.749 | 56.570 | 330.717 |
1994 | 250.831 | 41.597 | 46.583 | 97.414 |
1995 | 212.377 | 6.135 | 42.227 | 254.604 |
1996 | 200.800 | 0 | 76.820 | 277.620 |
Í eftirfarandi töflu kemur fram flokkun framlaga samkvæmt fjárlögum 1997 til þeirra mála
Fjárlög 1997 | Millj. kr. |
Til leiðbeiningarþjónustu | 127 |
Til búfjárræktar | 53 |
Til jarðabóta | 0 |
Til Framleiðnisjóðs | 274 |
Samtals | 454 |
Í greininni er fjallað um framlög til atvinnuuppbyggingar í sveitum og verkefna sem stuðla að aukinni framleiðni í íslenskum landbúnaði. Hér er átt við framlög til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Sjóðurinn var stofnaður með lögum nr. 89/1966. Hlutverk sjóðsins er orðað svo í þeim lögum: „Að veita styrki og lán til framleiðniaukningar og hagræðingar í landbúnaði og til atvinnurekstrar á bújörðum. Má jöfnum höndum styrkja rannsóknir og framkvæmdir er miða að lækkun framleiðslu- og dreifingarkostnaðar, svo og framkvæmdir, er stefna að því að samræma landbúnaðarframleiðsluna þörfum þjóðfélagsins miðað við markaðsaðstæður innan lands og utan á hverjum tíma. Lán og styrki úr sjóðnum má meðal annars veita til einstakra bænda, vinnslustöðva, ræktunarsambanda og vísindastofnana.“ Ríkisframlag til sjóðsins var 20 millj. kr. á fyrsta ári og var því öllu ráðstafað til 15 mjólkursamlaga sem styrk til endurbóta og hagræðingar. Verkefni næstu ára, reyndar alveg fram til 1980, lutu að tankvæðingu mjólkurflutninga og endurskipulagningu sláturhúsa. Einnig var veitt fé til rannsókna á húsvist búfjár og heyverkun. Framlag á fjárlögum til sjóðsins hélst að mestu óbreytt að krónutölu þennan tíma en rýrnaði verulega að raungildi.
Með lögum nr. 43/1979, sem fólu í sér skerðingu á jarðræktarframlögum, var ákveðið að mismun sem næmi skerðingunni yrði veitt til að efla nýjar búgreinar og hvetja til nýjunga í búrekstri. Veittur var stuðningur til að bæta súgþurrkun og kælikerfi í garðávaxtageymslum og auka nýtingu veiði og annarra hlunninda, auk þess að lögð var meiri áhersla á framlög til rannsókna. Þetta tímabil náði fram til ársins 1985. Ráðstöfunarfé sjóðsins varð töluvert meira en áður, en á síðari hluta tímabilsins uppfyllti Alþingi þó ekki lagaákvæði um þessi framlög.
Búvörulögin, nr. 46/1985, mörkuðu þáttaskil í starfi Framleiðnisjóðs. Lögin kváðu á um árlegt framlag til sjóðsins sem væri tiltekið hlutfall af heildarverðmæti búvöruframleiðslunnar og skyldi því varið til „eflingar nýrra búgreina, markaðsöflunar og fjárhagslegrar endurskipu
Í búvörusamningi milli ríkisins og Stéttarsambands bænda sem undirritaður var 11. mars 1991 var samið um föst árleg framlög til Framleiðnisjóðs, samtals 1.200 millj. kr. á árunum 1993–97. Fé þetta skyldi nota „til atvinnuuppbyggingar til sveita og verkefna sem stuðla að aukinni framleiðni í íslenskum landbúnaði“. Aðrar tekjur Framleiðnisjóðs eru af kjarnfóður
Grundvallarmarkmið í starfi Framleiðnisjóðs landbúnaðarins allt frá árinu 1985 hefur ver
Eftirspurn eftir stuðningi við nýjan atvinnurekstur á lögbýlum hefur haldist nokkuð jöfn þessi ár. Í þeirri miklu leit sem fram fer í þjóðfélaginu að nýjum og arðbærum viðfangsefnum hefur Framleiðnisjóður lagt mörgum málefnum lið. Hefur sjóðurinn leitast við koma til liðs við þá sem búa yfir frumkvæði og hugmyndum sem gætu leitt til arðgæfrar nýbreytni. Fjöl
Langmestu fé til endurmenntunar er varið til að styrkja bændur og bændafólk til að sækja námskeið á vegum búnaðarskólanna. Stuðningur Framleiðnisjóðs felst í greiðslu á kostnaði við kennslu, auk ferðastyrks sem greiddur er þeim sem þurfa að sækja námskeiðin lengra en 50 km frá heimili sínu.
Í könnun sem ÍM-GALLUP gerði fyrir landbúnaðarráðuneytið í nóvember og desember 1996 meðal starfandi bænda kom fram að tæpur helmingur þeirra hefur sótt námskeið á vegum búnaðarskólanna eða annarra aðila. Þeir sem farið höfðu á námskeið fyrir bændur voru spurðir hvernig þau hefðu nýst eða mundu nýtast til þess að bæta afkomu þeirra. Rúmlega 72% svarenda sögðu að námskeiðin hefðu nýst þeim vel.
Í eftirfarandi töflu kemur fram skipting framlaga úr Framleiðnisjóði landbúnaðarins 1992–96 til fjögurra meginviðfangsefna í millj. kr. á verðlagi hvers árs:
1992 | 1993 | 1994 | 1995 | 1996 | Alls | |
Atvinnuframlög, lögbýli
|
32,0 | 27,8 | 45,5 | 37,8 | 36,4 | 179,5 |
Atvinnuframlög, fyrirtæki
|
59,8 | 59,1 | 68,1 | 29,6 | 36,2 | 252,8 |
Loðdýrarækt
|
70,3 | 38,5 | 34,6 | 30,4 | 18,3 | 129,1 |
Búfjárrækt
|
24,3 | 49,1 | 6,3 | 13,3 | 93,0 | |
Samtals
|
162,1 | 149,7 | 179,3 | 104,1 | 104,2 | 717,4 |
Rétt þykir að samningar um framlög til Framleiðnisjóðs verði eftirleiðis liður í þeirri heild
Ákvæði 3. mgr. greinarinnar gera ráð fyrir að Bændasamtök Íslands hafi áfram faglega og fjárhagslega umsjón allra verkefna sem samið er um samkvæmt ákvæðum greinarinnar og annist framkvæmd þeirra nema öðruvísi sé um samið. Þar er átt við að í samningum megi fela öðrum aðilum innan félagskerfis bænda, rannsóknastofnunum, skólastofnunum og skyldum aðilum slík verkefni ef hagkvæmt þykir. Þá er gert ráð fyrir í 4. mgr. að heimilt verði að taka gjald fyrir þjónustu sem byggist á ákvæðum laganna.
Um 4. gr.
Um 5. gr.
Um 6. gr.
Engar viðræður hafa enn farið fram milli ríkisvaldsins og Bændasamtaka Íslands um við
I. Efling innlendrar fóðuröflunar og fóðurnýtingar fyrir búfé og ræktunar jarðargróða til manneldis:
Grasrækt:
Viðhald framræslu — hreinsun og viðhald framræsluskurða.
Endurvinnsla túna.
Grænfóðurrækt.
Kornrækt:
Ræktun korns.
Kornþresking — stuðningur við vélakaup og fræðslu.
Kornþurrkun — stuðningur við að koma upp nauðsynlegri aðstöðu.
Völsun og mölun korns.
Garðyrkja:
Stuðningur við að koma upp raflýsingu í gróðurhúsum.
Stuðningur við byggingu garðávaxtageymslna.
Stuðningur við að lengja uppskerutíma útiræktaðs grænmetis.
II. Stuðningur við verndun umhverfis og bætta nýtingu landgæða:
Verkefni sem miða að bættri nýtingu búfjáráburðar.
Bætt nýting lands:
Uppgræðsla heimalanda.
Skipulagning beitar.
Gerð göngustíga og lagning reiðvega.
Friðun og verndun votlendis.
III. Gæðamál, starfsumhverfi bænda og velferð dýra:
Stuðningur við vatnsveitur í sveitum.
Endurbætur útihúsa og bætt bútækni.
Lífræn framleiðsla, aðlögun og þróun.
Þá eru í greininni þau nýmæli í lögum að kveðið er á um að jarðabætur skuli taka mið af al
Um 7. og 8 gr.
Um 9.–16. gr
Um 17. gr.
Í könnun sem ÍM-Gallup gerði fyrir landbúnaðarráðuneytið í desember 1996 kom í ljós að um 80% bænda notfæra sér þjónustu héraðsráðunauta búnaðarsambandanna. Um fjórðungur bænda segist nota þjónustu héraðsráðunauta þriðja hvern mánuð eða allt að einu sinni í mánuði og er það stærsti hópurinn. Að meðaltali er þjónusta héraðsráðunauta notuð fimm sinnum á ári. Í könnuninni kemur fram að yngri bændur leita mun oftar til ráðunauta en þeir eldri. Einnig kemur fram greinileg fylgni milli bústærðar og tekna af búskap og þess hversu oft er leitað aðstoðar ráðunauts.
Um 18. gr.
Greinin gerir ráð fyrir að landsráðunautar starfi í einstökum búgreinum og/eða á einstökum fagsviðum. Hlutverk landsráðunautanna verði m.a. yfirumsjón með kynbótum og ræktun í viðkomandi búgrein og að vera fagráðum til ráðuneytis við mótun ræktunarstefnu. Gert er ráð fyrir að landsráðunautar starfi undir faglegri yfirstjórn Bændasamtaka Íslands og á þess vegum, en geti einnig samkvæmt sérstöku samkomulagi starfað á vegum annarra aðila.
Um 19. gr.
Um 21. gr.
Um ákvæði til bráðabirgða
Forsaga málsins er sú að gerðar voru breytingar á 7. gr. jarðræktarlaga, nr. 56/1987, lög frá 19. maí 1989, sem áttu að tryggja að samræmi næðist á milli fjárveitinga samkvæmt lögun
Með lögum nr. 1 24. janúar 1992, um ráðstafanir í ríkisfjármálum á árinu 1992, er í 4. gr. að finna breytingu á 12. gr. jarðræktarlaga, nr. 56/1987, eins og henni var breytt með 3. gr. laga nr. 65/1989, en við hana bættist eftirfarandi: „Allur réttur til framlaga samkvæmt lögum þessum er háður fjárveitingum Alþingis.“ Með þessu ákvæði var ætlunin að tryggja að frá og með árinu 1992 myndaðist ekki sjálfkrafa réttur til framlaga samkvæmt jarðræktarlögum.
Eftir að þessi breyting var gerð var mikið þrýst á stjórnvöld að veita framlög til byggingar áburðarhúsa og vatnsveitna. Var til þess vitnað að þær jarðabætur væru að stórum hluta til komnar vegna stjórnvaldsákvarðana um hreinlæti við mjólkurframleiðslu. Meiri hluti fjár
Þess ber að geta að sú skipan að bændur sæktu um viðurkenningu á framkvæmdum árið áður en í þær væri ráðist hefur ekki verið svo sem lögin kveða á um. Þrátt fyrir það hefur Búnaðarfélag Íslands (nú Bændasamtök Íslands) látið taka út framkvæmdir hjá bændum og litið svo á að þeir bændur sem ráðist hafa í styrkhæfar framkvæmdir eigi rétt til framlaga. Hins vegar liggja nú fyrir tvö álit ríkislögmanns frá árinu 199l um að ekki myndist lögvernduð krafa vegna framkvæmda samkvæmt jarðræktarlögum umfram fjárveitingar Alþingis.
Hinn 10. mars 1995 lagði Búnaðarfélag Íslands fram kvörtun til umboðsmanns Alþingis frá einum þeirra bænda sem ekki hafa fengið greidd framlög vegna framkvæmda á árinu 199l. Í úrskurði sem dagsettur er 15. maí 1996 kemur fram það álit umboðmanns að viðkomandi bóndi eigi fullan og óskoraðan rétt til framlaga samkvæmt jarðræktarlögum. Líta verði svo á að með jarðræktarlögunum hafi hendur löggjafans ekki verið bundnar með þeim hætti að skylt sé að gera fjárlög þannig úr garði að á þeim sé ætíð nægilegt fé til að svara áætlaðri fjárþörf vegna jarðræktarframlaga. Það ákvæði laga nr. 1/1992, um ráðstafanir í ríkisfjármálum, að allur réttur til framlaga samkvæmt jarðræktarlögum sé háður fjárveitingum Alþingis, sé því í raun ekki annað en staðfesting á því sem jarðræktarlögin sjálf bera með sér. Þá segir að réttur til jarðræktarframlaga sé bundinn því skilyrði að fé til þessara framlaga sé á fjárlögum, en samkvæmt 41. gr. stjórnarskrárinnar má ekkert gjald reiða af hendi nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum. Þeir sem þennan rétt eiga verði að hlíta því að þurfa að bíða eftir greiðslum þar til fé til þeirra er veitt. Um það hversu lengi ríkinu sé stætt á því að greiða ekki framlög sé vafasamt að ákveðin tímamörk verði dregin eins og lög nr. 56/1987 eru úr garði gerð.
Með hliðsjón af núverandi stöðu þessa máls hefur verið ákveðið að leita álits ríkislögmanns á því að nýju.
Í eftirfarandi töflu kemur fram skipting ógreiddra reiknaðra framlaga vegna jarðabóta árin 1992–96 eftir verkefnum sem geta notið styrks samkvæmt ákvæðum gildandi jarðræktarlaga.
Tegund framkvæmda | Ógreidd reiknuð framlög |
Pípuræsi
|
1.236.851 |
Endurræktun á þurrkuðu mýrlendi
|
98.397.475 |
Endurræktun á þurrlendi
|
38.578.872 |
Kornakrar
|
25.378.889 |
Skjólbelti, tré
|
2.506.721 |
Skjólbelti, girðingar
|
332.284 |
Áburðargeymslur
|
41.157.504 |
Votheyshlöður
|
295.241 |
Geymsluhús
|
12.979.921 |
Þurrheyshlöður
|
4.427.464 |
Súgþurrkunartæki
|
163.371 |
Garðávaxtageymslur
|
1.912.352 |
Kælitæki
|
1.841.863 |
Uppeldisgróðurhús
|
1.820.224 |
Lýsing í gróðurhúsum
|
3.291.363 |
Kolsýrutæki (í gróðurhús)
|
1.993.906 |
Losunarbúnaður í votheyshlöður
|
937.633 |
Vatnsveitur
|
11.263.568 |
Kölkun túna
|
2.785.558 |
Plógræsi
|
200.860 |
Vélgrafnir skurðir
|
21.437.052 |
Samtals
|
272.938.972 |
Með ákvæðinu er föst fjárhæð ætluð til þessa verkefnis, samtals 150 millj. kr., sem dreifist á þrjú ár. Fjármála- og landbúnaðarráðuneyti munu fara þess á leit við Bændasamtök Íslands að samningur um sauðfjárframleiðslu frá 1. október 1995 með breytingum frá 8. janúar 1996 verði endurskoðaður með það að stefnumiði að nýta hluta þeirra fjármuna sem ekki munu nýtast til uppkaupa á greiðslumarki og bústofni til verkefnanna sem hér um ræðir.
Þar sem úttektir vegna framkvæmda 1997 verða taldar með er ekki hægt að greina nákvæm
Fylgiskjal.
Fjármálaneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til búnaðarlaga.
Samkvæmt 3. gr. frumvarpsins er landbúnaðarráðherra fyrir hönd ríkissjóðs ætlað að gera samning við Bændasamtök Íslands til fimm ára í senn um verkefni á sviði jarðabóta, búfjárræktar og leiðbeiningarstarfsemi og fjárframlög ríkisins til þeirra. Breytingarnar eru gerðar í þeim tilgangi að stuðla að sveigjanlegra kerfi sem miði að því að mæta þeim þörfum sem koma upp hverju sinni. Þá er stefnt að því að draga úr kostnaðarþátttöku ríkisins í beinni þjónustu við bændur þannig að fjármunir verði frekar veittir til grunnþjónustu við greinina. Samningurinn kemur til endurskoðunar annað hvert ár. Í 3. gr. er jafnframt ákvæði sem heimilar að taka gjald fyrir þjónustu sem byggir á ákvæðum frumvarpsins. Landbúnaðarráð
Í ákvæði til bráðabirgða er landbúnaðarráðherra heimilt að ljúka ágreiningi sem er milli ríkis og bænda um framlög til verkefna jarðræktarlaga, nr. 56/1987, og verja til þess allt að 150 m.kr. á árunum 1998–2000.
Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1998 er lagt til að veittar verði 279 m.kr. til þeirra verkefna sem Bændasamtök Íslands hafa sinnt á grundvelli gildandi laga. Þar af er lagt til að 89 m.kr. renni til jarðræktarframlaga. Annars vegar verði 50 m.kr. varið til greiðslu ákveðins hlutfalls kostnaðar við eldri framkvæmdir og er það háð því að samningar takist við bændur á grundvelli brábirgðaákvæðis í frumvarpinu . Hér yrði um fyrstu greiðslu af þremur að ræða. Hins vegar renni 39 m.kr. til verkefna á grundvelli nýs samnings. Í búvörusamningi frá því í mars 1991 er gert ráð fyrir því að framlög til Framleiðnisjóðs falli niður á árinu 1998. Þrátt fyrir það er í frumvarpi til fjárlaga lagt til að veitt verði 175 m.kr. framlag til sjóðsins á næsta ári. Heildarframlög ríkisins til Bændasamtakanna á næsta ári eru því áætluð 454 m.kr. en þar af eru 50 m.kr. ætlaðar til uppgjörs á eldri framkvæmdum. Framlög til þeirra verkefna sem falla mundu undir samninginn við BÍ yrðu því að óbreyttu 404 m.kr.
Ekki verður ráðið af efni frumvarpsins né greinargerðarinnar hvaða fjárhagsleg markmið verða höfð að leiðarljósi við gerð þess samnings milli ríkis og bænda sem boðaður er og er því erfitt um vik að áætla breytingar á kostnaði ríkissjóðs. Rétt er að vekja athygli á því að við gerð framangreinds samnings þarf að taka tillit til ákvæða 30. gr. laga nr. 88/1997, um fjárreiður ríkisins, þar sem um er að ræða samning um rekstrarverkefni til lengri tíma en eins árs.